Viðskiptavinir vilja geta haft aðgang að öllum sínum gögnum hvar og hvenær sem er, þörf fyrirtækja og einstaklinga fyrir greið samskipti verður seint ofmetin, sérstaklega á þessum síðustu tímum. Verk- og tölvuþjónustan býður upp á margvíslega hýsingarpakka, enda er rekstur tölvukerfa og hýsingar okkar fag. Hjá Verk- og tölvuþjónustunni er hægt að hýsa ýmiskonar hugbúnað og leigja aðgang að sameiginlegu gagnasvæði fyrir einstaklinga sem og fyrirtæki þar sem hver notandi hefur sitt eigið svæði ásamt sameiginlegu svæði innan hvers fyrirtækis. Stofnkostnaður vegna vélbúnaðar og hugbúnaðarkaupa verður því enginn.
Hugbúnaður og viðskiptakerfi
Verk- og tölvuþjónustan getur hýst margvíslega hugbúnaðarpakka, einnig erum við með samstarfssamning við Microsoft og getum útvegað allan þann hugbúnað sem þeir bjóða uppá, viðskiptavinir okkar fá t.d. aðgang að Office 2010 gegn vægu gjaldi, við erum endursöluaðilar fyrir fjölda birgja hérlendis sem erlendis.
Exchange póstur
Verk- og tölvuþjónustan býður upp á aðgang að Exchange sem er afar fullkomið póstkerfi. Hægt er að nálgast póstinn í gegnum Outlook, vef eða GSM síma. Allar tengingar við vefpóstkerfið eru dulkóðaðar til að tryggja hámarksgagnaöryggi. Allur póstur sem fer í gegnum póstkerfið er vírusleitaður og hreinsaður, til að leitast við að forða notendum frá skemmdum af völdum tölvuveira.
Dulkóðaðar tengingar
Allar tengingar viðskiptavina við okkur eru dulkóðaðar, sama hvort um er að ræða fjarvinnslutengingar eða vefpóst. Verk- og tölvuþjónustan er endursöluaðili Digicert og getur því útvegað sínum viðskiptavinum rafræn skilríki og aðstoðað við uppsetningu þeirra.
Lén og nafnaþjónusta
Með útbreiðslu Internetsins, hefur það færst gífurlega í aukana að fyrirtæki og einstaklingar festi sér sitt nafn (lén) á Internetinu, jafnvel með séríslenskum stöfum.
Eftir að slíkt nafn hefur verið skráð er hægt að hafa lén, tölvupósthús og fl. á bak við nafnið. Verk- og tölvuþjónustan býður upp á þjónustu við skráningu og viðhald slíkra nafna.